Guðný Þóra Guðnadóttir hefur störf hjá Tind Sjúkraþjálfun
- 4 days ago
- 1 min read

Guðný Þóra Guðnadóttir hóf störf hjá okkur í febrúar á þessu ári.
Guðný útskrifaðist með B.Sc. gráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 2017 og hefur síðan aflað sér víðtækrar reynslu á sviði sjúkraþjálfunar og endurhæfingar. Hún hefur starfað hjá meðal annars Heilsustofnun NLFÍ og Atlas endurhæfingu auk þess að sinna íþróttasjúkraþjálfun hjá meistaraflokkum karla og kvenna í körfubolta hjá Val.
Guðný hefur sótt fjölmörg sérhæfð námskeið á undanförnum árum, meðal annars í liðlosun, nálastungum, verkjastillingu og meðferð tengdri áföllum og streitu.
Áhugasvið hennar eru fjölbreytt og ná meðal annars til bæklunar-, íþrótta-, tauga- og öldrunarsjúkraþjálfunar ásamt forvörnum.
Við hjá Tind Sjúkraþjálfun erum hæstánægð með að fá Guðnýju til starfa og hlökkum til að nýta hennar þekkingu og reynslu til að styrkja enn frekar þjónustu okkar við skjólstæðinga.







Comments