top of page

 

Tindur sjúkraþjálfun býður upp á alla almenna sjúkraþjálfun.

 

Á stofunni er allt til alls, fyrirtaks aðstaða og búnaður, þrjú lokuð meðferðarherbergi og vel útbúinn tækjasalur með glænýjum tækjum. Aðstaðan hentar vel fyrir þjálfun og endurhæfingu einstaklinga og smærri hópa.

 

Fyrsti tími í sjúkraþjálfun er skoðunartími sem byrjar á viðtali og svo ítarlegri skoðun á líkamsstarfsemi og byggingu, getu og færni til athafn. Meðferð er svo ákveðin af sjúkraþjálfara og skjólstæðing í samræmi við skoðun og markmið.

 

Við bjóðum upp á eftirfarandi þjálfun og meðferðir.

  • Fyrir og/eða eftir aðgerðir, slys eða veikindi

  • Við stoðkerfisverkjum

  • Hjarta- og lungnaþjálfun

  • Til að vinna gegn einkennum taugasjúkdóma og bæta færni

  • Til að vinna gegn álagseinkennum og -meiðslum

  • Til að fyrirbyggja íþróttameiðsli og bæta frammistöðu

  • Til að bæta hreyfistjórn, jafnvægi, stöðugleika og færni 

  • Rafmagns- og bylgjumeðferðir

  • Nálastungur

  • Mjúkvefjameðferð

  • Liðlosun 

Teammates
bottom of page